Jæja þá er
búið neyða mann til að skrifa eitthvað hérna því einhver
nennir ekki að lesa alltaf það sama þegar það kíkir hérna inn
en mér er náttrlega alveg sama
og er ekkert viss um
að ég nenni því
neitt..................................
Æi.........................
o......................................
hrmpffffff............
JÆJA
ÞÁ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Það er svosem eitthvað sem er búið að
gerast hjá manni sem hægt er að skrifa hérna EN EKKERT MERKILEGT!!
Já það var gott fiskerí síðustu vikuna í Apríl og komu upp í bátinn
ein 100 tonn af þorski sem skilaði ágætlega í kassann hjá
manni...... ekkert merkilegt sem maður náði að gera með þann pening
því maður var víst búinn að hlaða utan á sig skuldum á meðan maður
var í skólanum fyrir áramót.........
Já talandi um 100 tonn á einni viku
maður neitar því ekki að það voru farnir að lengjast á manni
handleggirnir eftir það og seinni partur vikunnar gekk maður bara
á þrjóskunni því það
var engin orka eftir og mikið andsk.... var maður feginn að komast
heim og slappa af en hluti af manni langaði nú soltið til að vera
þarna áfram á meðan fiskeríið entist en hlutskiptið var að fara
heim og reyna að hlaða inn á batteríin því annars hefði þetta verið
orðin þrælkunarvinna sem maður heldur nú reyndar að þetta sé, ég
hef aldrei sjaldan unnið jafn mikið því það er sjaldan undir 10
tímar á dag hjá manni og stundum 24 og þá er nú farið heldur betur
að síga á manni brúnin en lætur sig samt hafa það ( ég er nefnilega
so mikill nagli
)
En já svo var farið suður að
heimsækja mömmu og pabba sem við sáum svosem ekkert mikið því þau
voru so mikið að vinna og Ásgeir bróðir alltaf í skólanum svo við
renndum okkur ti Rvk og skoðuðum okkur um í Smáralind, Kringlunni
og Húsdýragarðinum J
leyfa drengnum
að kynnast landbúnaðinum hehe. Já heimsóttum Ríkey systur og
Laugu frænku í borginni.og Atli Valur kyssti lamb á
sveitabænum sem pabbi er að vinna á.
En já bæbæ bloggnördar og hafið það
gott í sumar ef ég skyldi ekki hitta ykkur eða nenna að blogga
aftur í sumar 